Það er nú alveg þvílíkt hvad manni getur fundist maður hafi mikið að gera og hvað tíminn getur liðið hratt.
Ágúst fór hálfur í það að grafa og ég mundi að taka eitthvað smá af myndum. Allt í allt var ég með þarna í 3 vikur og 2 daga
Hérna er flöturinn, ekki löngu eftir að efsta plógaða (?) moldalagið hafði verið tekið af.
Við Steffum pössuðum hundinn hennar Mette í nokkra daga. Hann heitir Bastian og Mette les með mér í fornleifafræðinni og vann líka á safninu í sumar.
Þetta er svo fíni lykillinn sem ég gróf upp fyrsta föstudaginn á uppgröftinni.
Ansi fínn hundur finnst mér.
Svo átti Steffen allt í einu afmæli og hann vildi lagkage.
Þar sem öllum öðrum sem unnu með mér, fannst ógeðslegt að koma við þessi litlu dýr, fékk ég það hlutverk að fara um hvern morgun og bjarna þeim greyjum sem höfðu villst niður í holurnar sem við höfðum grafið. Bjargaði líka litlum kŕuttlegum músi einn daginn. Klárlega einn besti hluti dagsins.
Og svo bara smá hverdagsmyndir af mold og fólki.
Hérna má lesa meira um hvað við vorum að grafa ;)
Fór og gaf blóð og var með mjög hraustlega mikið járn í líkamanum, sem alltaf er gott að heyra.
Steffen með mjög stóra og mjög skrítna í laginu kúrbít, sem ég fékk í gegnum Aarhus økologiske fødevarefællesskab.
Og svo að lokum haustmyndir af garðinum, hænum og uppskeru af baunum.
Síðan skólinn byrjaði aftur í byrjun september, hef ég ekki gert mikið annað en að lesa á lestrarsal, vera viðstödd á fyrirlestrum, borðað og sofið. Fór í thai bo síðasta miðvikudag og ætlar aftur í kvöld.
Er búin að harðákveða að nýta það í botn þennan síðasta tíma sem ég hef í skólanum og lesa vel og mikið. Maður fattar meira og meira hversu heppinn maður er að vera í þá stöðu að geta fengið að lesa og læra fag eins og þetta, og ég vil ekki láta það fara til spillis. Núna er líka bara eitt ár eftir af kennslu, því næsta haust fer maður í starfsreynslu og svo í að skrifa mastersverkefnið.




















Mjög áhugavert alltsaman. Fara ekki slöngur ofan í þessar holur?
ReplyDeleteEf þær væru eitthvað að þlælast þarna, eflaust. En það hafa bara verið salamöndrur, froskar, körtur og firben :)
DeleteÞessi dýramynd er geðveik í rauninni! Rosalega flott.
ReplyDelete"plægða" :) Rosalega eru þetta flottar baunir!! og bráðfallegur lykill
ReplyDelete