31.5.17

Bara ágætt

Veðrið er ekki eins spennandi þessa dagana. Hef samt tekist at læra alveg þónokkuð fyrir prófin. Við Josephine sátum á kaffihúsi í dag og ræddum um prófið eftir rúma viku. Mjög næs. Ætli það reddist ekki með þessi próf.
Ég fékk síðastu prófatímana í dag, fer í síðasta prófið í bachelornum 20. júní. Við Kristbjörg ákváðum þess vegna að fara á Tinderbox og sjá the Killers, fyrst ég er orðin viss um að ég sé ekki í prófi þann daginn sem þeir spila.
Garðinum líður ágætlega. Sólblómin vaxa eins og brjálæðingar. Ætla að prófa að leyfa þeim að vaxa öll, án þess að fjarlæga nein af þeim. Vona það komi fleiri minni blóm þannig. Það verður bara að koma í ljós.




















27.5.17

Sulta og froskur

Ég bjó til sultu úr rabbabaranum og það varð fáranlega gott á bragðið. Þetta var "vinrabarber", sem var svona rosalega fín rauð á litinn.
Ég "notaði" þessa uppskrift, en fyrst vigtin mín bilaði (og vigtin sem Nanna gaf mér er niðri í kjallara einhversstaðar) þá gat ég  ekki mælt rabbabaran og gerði þess vegna allt på gefühlen. Mjög auðvelt að gera svona greinilega. Ég notaði ekki þetta efni sem lætur þetta endast lengur, af því Mamma sagði einhvern tíman að sykur virkaði eins og rotvarnarefni (held ég). Ég er hvort sem er líka búin að fá Steffen til að nota alltaf hreina skeið, svo þetta ætti ekki að mygla. Hún er samt bara svo góð á bragðið, að hún mun örugglega ekki endast lengi.

Það er svo heitt þessa dagana. Dæmigert prófatíða veður. Lá úti í gårdhaven og las í nokkra klukkutíma, þannig maður reynir allavegna að nýta sér góða veðrið. Ég fór í jógatíma á fimmtudaginn, sem var gaman af því að var ekstralangur tími, með auka fókus á jafnvægisæfingum. Mér finnst mér fari mikið fram með svona jafnvægi, enda var ég frekar léleg í því áðurfyrr. Var að læra þessa skrítnu æfingu, sem reyndar reynir ekki svo mikið á jafnvægið. Er bara skrítinn. Mjög einbeitt á svipin náttúrulega.
Við hittum frosk til fredagsbar í gær. Það var gaman.

24.5.17

Ekkert mikið, en margar myndir

Við Steffen fundum skemmtilegt spil. Sérstaklega svona í prófatíðinni og maður þarf stundum að geta gert eitthvað annað en að lesa, sem ekki tekur of mikinn tíma. Það að auki erum við bæði voða léleg í þessu. Hann vann síðast, en ég er að vinna núna.
Ég fór og vökvaði í dag, eins og venjulega. Það er ekki mikil rigning þessa dagana, en mikil sól. Það var þónokkuð af fólki sem var líka að vökva, held að það séu fleiri sem eru að byrja að hugsa um garðinn sinn fyrir sumarið.

Við Josephine fórum og sóttum grænmeti úr Aarhus økologiske fødevarefællesskab. Það er klárlega plús að búa í stórum bæ, að hafa aðgang að svoleiðis. Fyrir 60 kr fékk maður í þessari viku: Rabbarbari, steinselju, spínat, vorlauk og salathaus. Aðalmálið er samt að maður styður sjálfstæða lífræna ræktum í nágrenninu hjá Árósum. Og allt er fáranlega gott á bragðið.

Mig langar að gera rabbarasultu, því mig langar ekki í rabbaraköku aftur. Bakaði svoleiðis í síðustu viku nefnilega. Það virðist ekki vera alltof erfitt eftir að hafa skoðað smá uppskriftir á netinu.
Ég er byrjuð að læra undir þarnæsta próf. Næsta próf er nefnilega meira samtal um verkefni sem við höfum skilað, þannig það mun ekki þurfa jafn mikla undirbúning og prófið sem er síðast í júni. Það er 45 mín munnlegt próf, með 45 mín undirbúning eftir maður hefur fengið spurningu. Og það er frekar mikið að lesa. Ég er að reyna að vera skynsöm við að lesa og skrifa atriði úr tekstunum niður. Ég meina, það er ekki eins og ég hafi mikið annað að gera þessa dagana.

Maður getur giskað á hvor maturinn er minn og hvor er Steffens.
Að lokum eitt risastórt spínatlauf og tilraun að selfie eftir Thai bo tíma í fitness.



23.5.17

Þriðjudagur í maí

Það er skilafrestur á morgun kl 14 á skýrsluna sem við áttum að búa til eftir praktikina. Ég var að henda skjalinu inn í skilahólfið núna. Gott að hafa smá tíma til að geta séð eitthvað sem eigi að breyta, því það gerist oftast þegar maður er búinn að skila. Ég held samt að allt sé eins gott og það getur orðið, en núna hef ég allavegna sólarhring til at breyta ef það skyldi verða þörf á því.
Ég fór niður að garðinum mínum áðan. Vökvaði og plantaði nokkrum grænum baunum (ærter), af því það voru ekki margar af þeim sem ég upprunalega plantaði sem ákváðu að spíra. Læri bara eittvað af því. Það kom maður og spurði mig hvað kostaði að hafa svona garð og svona. Það er voðalega mikill áhugi fyrir þessum Urban garden. Það er oft meira af fólki sem tekur myndir og skoðar garðana, en það er fólk sem er að passa garðana sína. Maður verður nánast bara tourist attraction þarna. Eitthvað fólk hefur víst verið að stela jarðaberjaplöntum og berjarunnum úr beðunum. Það þeim skuli finnast það þess virði, is beyond me.  

Það eru ekki allar baunaplönturnar sem eru að lifa af, en ég treysti líka á að þær myndu ekki allar meika það. Annars væru allt of mikið af baunum þarna. Hef allavegna lært að ef baunirnar mygla þegar þær spíra, þá er meiri möguleiki á því að plöntunum ekki líða vel seinna. Eins og fólk, þegar þeim ekki líða vel sem börnum, þá gengur þeim oft verr sem fullorðið fólk. Já, baunaplönturnar mínar eru eins og fólk. Annars er eiginlega allt sem ég hef plantað að vaxa vel. Nema steinseljan sem ég setti í pott, það er cirka helmingurinn visnaður. 


22.5.17

Jæja

Ætli ég muni hvernig maður heldur uppi svona bloggi. Ætli ég reyni ekki bara að halda íslenskunni við smá, og skrifa á dönsku líka ef mér langar. Best að vera ekkert að gera of háar vonir um mínar eigin getur við að blogga.
Það tókst ágætlega að gera reglulegar bloggfærslur þegar ég bjó í Vín. Tumblrið hef ég samt aulalega misst aðgang að, þannig er snúin aftur að þessu meira klassíska bloggformi.
Mér hálfleiðist líka bara þessa dagana. Er ekki í vinnu og prófatíðin er ekki mjög erfið þessa önnina. Gott að ég hef garðinn minn. Kannski ég haldi bara garðadagbók hér.
Það er ekki skrítið að manneskjurnar fóru að rækta jörðina fyrir þessum nokkum árum síðan. Það er svo gaman að sjá hluti vaxa, sem maður sjálfur stjórnar. Að mörgu leiti, var það ekki góð hugmynd að búa sem bændur í staðinn fyrir að safna og veiða. En ætli manneskjunum hafa ekki fundist það gott að geta stjórnað náttúrunni smá, þegar það var náttúran sem oftast tók lífið þeirra. Fólki finnst jú svo gott að hafa stjórn á hlutum.
Annars er svona að frétta, að ég hef fengið svar frá skólanum um að ég fái að halda áfram með kandidatinn í forhistorisk arkæologi. Ekkert nýtt þar svosem, eitthvað hefði átt að breytast mikið í systeminu til að ég kæmist ekki að. Ég senti um daginn nokkrar umsóknir út til safna sem vinna við fornleifafræði. Verð bara hálf klikkuð af að vera ekki í vinnu. Nú verðum við bara að sjá til. Kamilla, yfirmaðurinn í gamla vinnunni minni í Viborg (sem ég var í þangað til ég byrjaði í praktinni), sagði að hún myndi hafa samband ef það skildi verða pláss fyrir mig. Hún virtist meina það og hún er heldur ekki þannig sem myndi ljúga um að vilja fá mig aftur í vinnu. Vona ég allavegna. Það er nú heldur ekki lítið mál að fá vinnu í fornleifafræði, en maður fær allavegna ekki neitt ef maður sendir ekki út umsóknir. Hef ekkert planað í sumar, svo ég geti með stuttum fyrirvara sagt já við vinnu. Nema að fara ein til Svíþjóðar, í Rock art dokumentation seminar. Rock art eða helleristninger heita greinilega petroglyphs á íslensku segir google translate. Ætli það sé nú líka satt.