22.4.18

Update

Ég veit bara ekkert hvernig maður bloggar lengur.

Við vorum að byrja í síðasta venjulega faginu í háskóla. Hitt fagið er alveg að verða búið, og eigum að skila stóru verkefni í því í júní. Fyrst við höfum bara kennslu einu sinni í viku flestu vikurnar í maí, fæ ég að vinna þrjá daga í viku. Það verður strax erfitt að passa inn í dagatalið með alla þessa silly hátíðardaga í maí. Eftir prófin í enda júní, fer ég að vinna 37 tíma í viku. Það verður gott að safna smá pening inn, áður en ég fer í praktik og að skrifa mastersverkefnið. Mun búa uppi í Thy frá mið ágúst og þá er bara spurningin hvernig það verður. Safnið getur reddað mér stað að búa, en þá þyrfti ég að finna mér bíl að keyra í þar á milli, því Thy er ekki mikið betri en Ísland þegar kemur að almennissamgöngum. Þá er það líka bara það að maður eiginlega þarf hvort sem er að vera á bíl þegar maður fer út að vera fornleifafræðingur í vinnu, þannig það er nánast það sama hvort maður finnur sér bíl fyrr eða seinna. Ætli eitthvað foreldri myndi vilja lána manni pening, svo maður þurfi ekki að fara að skulda banka pening. Aldrei að vita. Mun vera búin að safna mér smá búnka af peningum eftir sumarið, en grunar það verði ekki nóg fyrir allt.

Við erum komin í gang með garðin, og ég er mun meira skipulögð í þetta skifti. Reyni að koma grænu baununum í gang inni, svo fuglarnir komi ekki og éta þær allar (nema þessi eina sem lifði af í fyrra). Tókst líka að koma heilmiklu lífi í graskersfræjum, sem voru keyptar til að éta til að byrja með. Baunirnar sem ég ræktaði í fyrra, eru líka góðar í að gera fínar plöntur þetta árið.
Þessi mynd var lögð á facebook, þegar ég fékk nokkrar af stelpunum með í garðinn í "første dag i haven".