27.6.17

Tinderbox


The Killers áttu að spila fimmtudagskvöldið á Tinderbox, þannig að við Kristbjörg tókum lestina til Odense klukkan korter i 6 þann morgun. Ívar býr rétt hjá hátíðarsvæðinu og við fengum að sofa heima hjá honum. Fyrst að Kristbjörg var að fara í próf á mánudeginum, fórum við Ívar í leiðangur og leyfðum henni að læra og sofa smá. Við löbbuðum í Rúmfatalagerinn, þar sem Ívar keypti sér sumarsæng og kodda. Svæðið opnaði klukkan 13 og við vorum komnar á svæðið ekki mikið seinna en það. Fyrstu tónleikarnir voru með Gogol Bordelle, sem voru frekar klassískir festivaltónleikar. Svona mjög hressir gaurar, með fullt af hljóðfærum og tónlist sem maður ekki hefur heyrt áður. Einn af gaurunum var til dæmis með harmonikku sem hann gat sveiflað um, eins og hljóðfærið væri engan veginn þungt. Þegar leið á deginum sáum við Tove Lo, die Antwoord og Kim Larsen.
Kristbjörg fann vinigar fries

Die Antwoord var frekar klikkað
Allir þessir tónleikarnar voru betri en ég hafði búist við. Þegar Kim Larsen var búinn að spila, stóðum við tilbúnar til að fara upp fremst að sviðinu. Það var frekar mikill spenningur að komast upp að sviðinu, sérstaklega þar sem það ekki var raðakerfi, eins og á Roskilde. En okkur tókst að komast alveg upp að girðingunni hjá sviðinu, ekki langt frá miðjunni, án þess að troðast fyrir framan annað fólk. Kristbjörg lýsti því að ná að taka í girðinguna, eins og allt fór í slow motion.

Við stóðum og biðum fyrir framan sviðið í einn og hálfan tíma, meðan Mø spilaði á hinu sviðinu. Sjálfir tónleikarnir eru pínu blur í minningunum. Það hefur verið svo langur tími og mörg ár þar sem ég var búin að reyna að komast á tónleika með þeim og skrifað þá á óskalistana fyrir tónlistarhátíðirnar. Ég veit allavegna að ég söng með hverju einasta orði og þessir nærri tveir klukkutímar líðu ótrúlega hratt. Ætla klárlega að elta þá aftur á tónleika, þegar ég fæ tækifæri til þess.






Það verður náttúrulega að taka fram, að ég zoomaði ekki á neinum af myndunum, því við vorum það nálægt. Við fórum beint að sofa eftir tónleikana, því dagurinn var á þeim tíma orðin mjög langur.
Föstudagurinn var meira rólegur. Það voru samt alveg þónokkrir tónleikar sem voru vel þess virði að sjá. Við sáum Kaleo (íslensk hljómsveit), Jimmy eat world, Veronica Maggio, Haim og Kings of Leon. Annars vorum við bara að njóta þess að hanga á svæðinu.

Kristbjörg fór heim um laugardagsmorgunin, til að fara að læra fyrir próf. Ívar fékk þess vegna armbandið hennar, sem hún hafði séð til þess að hún gæti tekið af svo hann gæti fengið það. Laugardagurinn var aðallega rapp og hiphop, þannig við Ívar tókum það mjög rólega allan daginn. Eftir Lukas Graham um kvöldið, fórum við heim að sofa.



Sunnudagurinn fór í það að vakna og fara á DalleValle með pabba og kærustunni hans. Ég fékk að keyra um Odense í bílnum hans pabba og lagði meðal annars svona fallega í stæði í miðbænum.
Núna er þetta annað skiptið sem ég hef farið á Tinderbox, bæði skiptin af því ég gat ekki sleppt að fara út af þeim tónleikum sem myndu vera þar. Þessi hátið er alveg ágæt. En ég ætla að halda því fram að maður fái mun meira fyrir peningin á Roskilde, ef maður lítur á upplifum og mangfoldighed. Það sem er sérstakt við Tinderbox er að það er svið sem er sérstaklega sniðað fyrir DJ'a. Ég hef ekki farið á tónleika þar, því ég held ég þekki sjálfa mig nógu rétt til að vita það myndi líklega leiða til einhverskonar kvíðakasti. Venjulegir tónleikar eru alveg nægilega krefjandi fyrir sjálfið mitt.

Steffen fór í síðasta prófið í gær og fékk bara mjög fína einkunn. Núna erum við þar með bæði BA. Ég las að við fáum skírteini sent í pósti, og það eigi að vera komið innan þriggja mánaða. Þannig það verður örugglega fyrst komið eftir þrjá mánuði.
Steffen passaði garðinn voða vel á meðan ég var á Fjóni. Hann er voða stoltur af blómunum sem eruð byrjuð að vaxa í einu horni af beðuðum, sem hann hefur gróðursett. Held bara að hann sé að verða bitinn af þessu líka. Hann smitar fótboltaáhuga á mig og ég garðyrkju á hann. Góð skipti. Við tókum upp fyrstu gulræturnar og svo eru komnar litlar belgur á baunaplöntunum.



Það eru líka loksins komnar hænur í hænsnagarðin. Þær eru svo fínar og virðast njóta lífsins mjög vel þarna.















20.6.17

Bachelor

Jæja, þá er ég orðin bachelor í fornleifafræði, með safnafræði sem valfag. Fékk einkunn fyrir skriflega prófið og fór í munnlega líka í dag, og er núna búin með öll fögin. Þá get ég hætt að hugsa um að þurfa lesa óspennandi teksta og einbeitt mér að því að vinna og njóta lífsins í sumar. Held að þetta verður gott sumar. Ég skrifaði til stelpu sem líka er að fara á ráðstefnuna í Svíþjóð í júlí, sem býr í Árósum og hún vill gjarnan vera samferða. Þá er þetta allt í einu miklu minna ógnandi, fyrst ég er ekki að fara alveg ein af stað. Er frekar ánægð með sjálfa mig að hafa þorað að hafa samband við hana, haha. Maður tekur nú skref á hverjum degi jú.
Fer að vinna á morgun, og svo förum við Kristbjörg af stað til Fjónar með lest kl 5:30 á fimmtudagsmorgninum. Klukkan rétt fyrir miðnætti munum við svo vera mjööög sáttar að sjá Killers á Tinderbox.
Tók nokkrar myndir í vinnuni, þegar ég var með úti að grafa. Ég fer aftur með út á morgun svo, þannig það er frábært. Þetta er víst smá bronzealder byggð, sem þarf að skjalfesta, áður en svæðið verður tæmt til að safna sandinum sem er þar. Þar eftir á víst að selja lóðina til Apple. Apple er víst alveg á fullu að byggja í Miðjótlandi.





















Mamma, ég ákvað að fjarlægja ekki neina af tallerkensmækkerne. Vona bara að þær vaxi pínu til hliðar og svona. Það eru ekki það margar, þær eru bara orðnar stórar. Hef ákveðið að læra bara af reynslunni í staðinn.
Eftir próf í dag fór ég í Silvan og keypti nokkur prik. Núna geta allar baunaplöntur snúið sér upp að þeim. Mér finnst baunaplönturnar svo fínar, mjög ánægð með þær. Við plöntuðum eina röð af radisum og eina röð af gulrótum, þar sem radísurnar voru.




 Svo sá ég svona fínt þegar við löbbuðum um garðinn í gær.





14.6.17

Ný tölva

Ég var komin með svo mikið leið á að þurfa að dröslast um með stóru tölvuna mína, þannig ég keypti mér nýja.

Hún er nánast sama strærð og gamla tölvan mín (11,6 inches) og er svona Chromebook. Maður getur bara verið á Chrome, eins og nafnið gefur til kynna, sem er einmitt það sem mig vantaði. Það sem mig vantaði var nefnilega tölva sem er góð að skrifa í og auðveld að taka með í lest og í skólann. Fyrst ég skrifa allt í gegnum google docs, þá þarf ég ekki fullt af forritum. Hin tölvan virkar fínt enn, er bara orðin pínu hæg, þannig ef ég þarf að nota tölvu sem getur meira en að fara á netið, get ég enn notað hana. Ég borgaði bara 1700 kr fyrir hana, þannig gat ekki orðið mikið ódýrara. 

Það er gott að vinna aftur. Fyrstu þrjá dagana hef ég verið að "þvo mold", eins og það er stundum kallað. Það heitir í rauninni "flotering". Þegar maður er úti að grafa þá getur maður tekið jarðprufu, sem er tekin með heim á safnið. Moldin er látin þorna vel og vandlega og svo sett í vatn. Þá flýtur allt lífrænt upp, sem aðallega er kol (og nýjar rætur). Kolin getur maður síðan sent í C-14 prufur (kolefnaeitthvað... Kristbjörg?), sem getur sett tiltölulega mjög nákvæma dagsetningu á hvenær kolin brann. Svo ef maður finnur brennd fræ, þá er fólk sem vinnur við að greina hvaða tegund af fræi það er. 
En á morgun fæ ég að fara með út að grafa. Veit ekki enn hvað það er, en það verður gaman. Í næstu viku vinn ég bara á miðvikudeginum, af því ég fer í próf á þriðjudaginn og Tinderbox byrjar á fimmtudeginum. Hlakka til að vera búin í prófinu. Það er pínu erfitt að geta ekki gert mikið annað en að vinna, lesa (oft pínu leiðinlega teksta) og sofa. Gott að geta kíkt í garðinn, til að halda geðinu við.





11.6.17

Allt í prófum

Ég stóðst prófið sem ég fór í síðasta föstudag. Þetta var svona besået/ikke bestået, og kennarinn hafði lagt aðaláhersluna á að við værum tilbúin að koma inn og halda uppi samræðu um efnið. Svo erum við búin að vera skila fullt af verkefnum yfir önnina í þessu fagi, þannig prófið var heldur ekki mikið erfitt, ef maður var búinn að undirbúa sig rétt undir það.
Núna er það næsta próf sem er aðaláhyggjuefnið. Það er frekar mikið sem þarf að lesa, svo ég er að berjast í gegnum efnið þessa dagana.
Aðferðin sem ég nota núna, er að lesa og strika undir aðalatriði og skrifa svo það undirstrikaða niður sem glósur eftir að hafa lesið allan tekstan. Ég held að það virki ágætlega fyrir mig. Allavegna komið með heilmikið af skipulögðum glósum, sem segja í stuttu máli hvað allir þessir tekstar segja. Ég ætla að lesa eins mikið og ég get í dag, því ég byrja í fullri vinnu á morgun. Ég get síðan lesið í lestinni á leið í og úr vinnu. Svo hef ég næstu helgi og fer svo í prófið þriðjudaginn þar á eftir. Það væri óskandi að geta fengið góða einkunn, en aðalmálið í samt að falla ekki, svo ég geti officially fengið bachelorgráðuna mína.

6.6.17

Vinna

Kamilla frá Viborg Museum hringdi hér í dag. Hún sagði að nú væri komin verkefni fyrir mig í vinnunni og ég mætti bara byrja í fullri vinnu strax og ég gæti, og fram að skólabyrjun í september. Við ákváðum að ég mæti þá á mánudaginn og fari á fullt að vinna við sömu verkefnin sem ég hafði áður en ég byrjaði í praktik og komi svo með út að grafa í nokkrar vikur í ágúst. Það verður geðveikt að hafa eitthvað meira að gera aftur, var orðin svo vön því að hafa nóg að gera að ég kunni ekkert við það að eiga bara að læra fyrir próf. Núna tekur þá við að ég þurfi að skipuleggja tímann og dagana þangað til ég fari í síðasta prófið 20.júní. Við Kristbjörg erum líka búnar að kaupa miða á Tinderbox (fyrst Killers eru að spila), en hún sagði að ég tæki bara frí, því henni fannst ég þyrfti nú líka að fá smá sumarfrí. Þetta verður líka mikill peningur! Held ég fái meðrasegja hærri laun þegar ég verð komin með bachelorgráðuna. Aðalmálið er samt að ég fái að vinna við fornleifafræði aftur.

3.6.17

Saumakassi

Hvordan kan man bruge læringsteorier når man vil inkludere og aktivere børn på museer, samt leve op til de krav som EMU sætter til historiefaget?
Við eigum að búa til spurningu sjálf fyrir munnlega prófið í næstu viku og tala í 10 mín um það. Er orðin sátt við þetta sem ég er búin að lenda á. Eins gott að nýta sér reynsluna sem maður hefur úr sínu eigin lífi, fyrst ég hef notað svo mikinn tíma í að reyna að fá börn til að finnast eitthvað áhugavert. Það er líka alveg áhugavert í sjálfri sér. Ætla að tala um hvernig fólk lærir á mismunandi háttum, hvernig maður getur séð til þess að flestir fái sem mest út úr því er er á söfnunum og svona þannig dót. Hugmyndin um að "læra" í sjálfri sér er náttúrulega rosalega áhugavert. Fólk er alltaf að læra.

Hvað gerir maður annars þegar maður lærir fyrir próf? Býr til saumakassa. Það hefur verið vandamál síðan ég flutti að heiman, að allt saumadót sem ég hef keypt, hefur horfið í ýmsum flutningum og óskipulagi. Fann alveg frábærlega krúttlega míni saumavél í Tiger. Gat náttúrlega ekki annað en að kaupa hana. 30 krónur danskar er líka alveg ódýrt fyrir svona krúttlegt fyrirbæri. Verð að finna eitthvað til að sauma, til að prófa hvernig þetta virkar. Hugsa að þetta sé tilvalið til að stytta buxur. Það er nefnilega þannig að vinnubuxur fást nánast ekki í kvennastærðum og sérstaklega ekki fyrir svona stutta fótleggi og ég geng um með. Það eru nátturulega líka bara karlar sem vinna í vinnubuxum. Þvæla. Það verður spennandi að sjá hvort maður geti svo keypt aðra nál í þetta, ef þessi brotnar. Vonandi passar einhver venjuleg saumavélanál. Svo þegar ég verð rosa rík, í stóru húsi, fæ ég mér almennilega saumavél. Tiger var líka með fínan kassa, einmitt fullkomin í að geyma saumadót fyrir lítið heimili. Frekar sátt med niðurstöðuna bara!