23.9.17

Baun

Ég er búin að liggja veik heima í dag og í gær. Var búin að vera smá veik í nokkra daga, en fyrst það kom helgi gat haft tíma til að láta mér batna af þessum kjánalegheitum. Steffen var með sömu einkenni fyrir viku síðan, þannig það leikur ekki mikill vafi á hver hefur smitað mig.
Við fórum samt niður í garðin til að tína síðustu tilbúnu baunirnar. Ég á svona sniðuga hjólakörfu sem maður getur hengt á beðið.



Svo keypti ég í gær miða á the Killers í febrúar í Kaupmannahöfn fyrir mig og Kristbjörgu. Það verður svo geðveikt!


3 comments:

  1. My god sniðug karma! Og láttu þér batna :)

    ReplyDelete
  2. Og ég sem náði að velta því fyrir mér hvort Nanna væri að meina að það væri karma að Steffen smitaði Silju. En nei, sem betur fer ekki. Sammála að þetta er sniðug karfa.
    Og flottar baunir maður! Hvað ætlarðu að gera við þær?

    ReplyDelete