4.8.18

Helluristur og Skagen

Ákveðinn doktorsnemi pantaði blogg um hvað ég hafði verið að gera í Svíþjóð.

Ég hafði keypt bílin viku áður, þannig við Josephine og Helene keyrðum til Grenaa á föstudeginum og fórum í 4,5 tíma ferjuferð til Varberg í Svíþjóð. Þar pikkuðum við Ditte upp, sem er nýbúin í fornleifafræðinni í háskólanum, og keyrðum síðust 2 klst upp að Tanum.
 Seminarið byrjaði fyrst um kvöldið á laugardeginum, þannig við fórum og skoðuðum smá túristasteina, þar sem búið er að mála fígúrurnar með rauða málningu.
 Uppi á hæð eru tveir steinahlaðningar, sem voru grafhaugar frá Bronsöldinni, samtíma með flestum af ristunum.
 Um kvöldið eftir kvöldmat var farið í ferð til að skoða ristur í skjóli næturs. Við fórum út að skoða steina hvert kvöld alla vikuna.

 Hollenska Mette að búa til armband með litlu þýsku Josefine.
 Gerhard, stofnandi námskeðsins, að tala um einn af túristasteinunum.
 Rauður hundur.
 Gerhard að tala um ómálaðan túristastein.
 Ég var sett í hóp með Peter (DK), Helene (DK), Magnus (NO) og Robin (UK). Við Peter vorum líka saman í hóp í fyrra og erum orðin frekar góðir vinir bara. Á myndinni eru Peter og Helene og kríta það inn sem við sjáum í myrkrinu á steininum, við að beina ljósinu frá hliðinni.

Daginn eftir tókum við pappír og nudduðum allan steinin með carbonpaper. Þetta skapar mest hlutlausa skjalfestinguna af ristunum.


 Helene og Magnus á leiðinni heim af steininum.
 Ég að keyra með vínklaða nefið mitt.
Helene og Magnus að mála fígururnar með blöndu af kalki og vatni.
 Þessi "málning" hverfur við fyrstu rigningu og þjónar þeim eina tilgangi að búa til fína ljósmynd af steininum.
 Helene og Josephine að tala við steinin.
 Gaur að að plægja.
 Litla Josefine að tala við steinin.
 Tveir feitir að flýja frá úlfinum. Finnst mér allavegna,
 Það voru líka fyrirlestrar flesta dagana, en það er ekki mikið myndrænt efni.
 Fugl að sitja í hornum.
 Stóri steininn okkar þegar við vorum búin að klára að vinna á honum.
 Josephine, Helene, Ditte og Mette að tala við steinin.
 Two lovebirds.
Hópurinn minn vann svo vel saman að við fengum annan minni stein.
 Hundurinn minn.
 Hestur að draga sólina á eftir sér.
 Þrjár dömur að skoða steinin og pósa.
 Annar hestur að draga sólina á eftir sér.
 Cute.
 Rétt fyrir brötfför og fólk er vel þreytt.

Ég byrja í praktik á mánudaginn eftir viku og Steffen byrjar þennan mánudag í Helsingør. Hann kom upp að útgröftinni í gær, sem ég hef við að vinna á síðustu mánuðina. Þegar ég fékk frí keyrðum við upp að Álaborg og fórum að safnið við Lindholm Høje. 




Þareftir keyrðum við upp að Skagen, þar sem við hvorugt höfum við áður. Þar var vinur okkar í fríi með fjölskyldunni sinni og við fórum saman út á Grenen. 



Svo keyrði ég okkur heim um kvöldið. Ég er að segja ykkur, ég er orðin alveg miklu betri í að keyra, bara af að keyra alveg fullt síðustu þrjár vikurnar.