9.12.17

Alltaf í skólanum

Ætli ég sé með nóg af bókum fyrir þetta verkefni (og smá fyrir greinina). Er líka sífellt að panta fleiri bækur, sem ég greinilega ekki get lifað án. Maður verið nánast hræddur að hugsa um þegar maður ekki hefur aðgang að bókasafninu lengur, þegar kona er búin í náminu. Og svo skifti kona greinilega um kyn í miðri setningu þarna.

5.12.17

5. des



Ég hef fengið að fara með út að grafa tvær vikur í röð í vinnunni. Mjög ánægð með að þeim finnist ég vera hjálp og það borgi sig að taka mig með (er nú líka ódýrari en hin fyrst ég er ekki búin í náminu enn). Það er alveg alpha og omega að fá reynslu í þessu, það er ekki mikið sem maður gerir þarna úti sem maður getur lært á annan hátt en að læra af reynslunni og læra af öðrum í aksjón. 






Við pössuðum hundinn hennar Mette, hann Bastian, aftur og í þetta sinn vorum við heima hjá okkur með hann fyrst þetta bara var ein nótt. Hann er virkilega alveg fáranlega krúttlegur. En líka mjög spenntur þegar hann hittir aðra hunda, eins og kannski smá má sjá á síðustu myndinni. Svona hundar eru stundum kallaðir smiling dogs, af því að andlitið þeirra er þannig þeir líta út fyrir að brosa.

Svo eitt hús og ein Josephine. Þessa dagana er ég að skrifa verkefni um hús, sem er uppáhaldsefnið mitt að vinna með. 
Ef fólk segir að þeim líði illa (har det skidt) er ég orðin vön að spyrja hvort það sé líkamlegt eða andlegt (psykisk eller fysisk). Núna í dag á bæði við um mig. Held líka það sé blanda af að bæði gerir hitt verra. Finnst vera pressa á með allt sem ég vil ná að gera og svo held ég að ég sé með einhverja smá flensu og eitt leiðir að hinu. Reyni að nota app í símanum til að skrá líðan minnst einu sinni á dag og svo að nota annað app til að hugleiða (guided meditation). Finnst það hjálpa. Fór til læknis af því ég var farin að hafa áhyggjur af að pillan, sem ég hef verið á í nærri áratug, væri að leiða til að ég fengi verki í kringum hjartað. Því það gerðist sérstaklega þegar ég væri meira stressuð en venjulega eða hafði haft kvíðafyllri (svona án augljósra orsök) daga en annars og vildi vera viss um að blóðþrýstingin væri ekki of hár. En blóðþrýstingin var í lagi (held að það sé í fyrsta sinn sem það tókst hjá mér án þess að það þurfti að mæli mig tvisvar). Læknirinn samþykkti að ég skifti fyrir í aðra vörn en pillan, en henni grunaði að það væri rétt hjá mér að það væri stress eða líkt sem væri að vekja óþægindi í kringum hjartað, sem víst ekki er svo óvenjulegt. Það er svo mikið verið að tala um pillan að valdi heilsuvanda og líka stress hjá ungu fólki, að ég vildi ekki hunsa það ef það skildi nú vera eitthvað að. Reyni að vera smá á undan áður það verði alvöru vandamál.