Við eigum að búa til spurningu sjálf fyrir munnlega prófið í næstu viku og tala í 10 mín um það. Er orðin sátt við þetta sem ég er búin að lenda á. Eins gott að nýta sér reynsluna sem maður hefur úr sínu eigin lífi, fyrst ég hef notað svo mikinn tíma í að reyna að fá börn til að finnast eitthvað áhugavert. Það er líka alveg áhugavert í sjálfri sér. Ætla að tala um hvernig fólk lærir á mismunandi háttum, hvernig maður getur séð til þess að flestir fái sem mest út úr því er er á söfnunum og svona þannig dót. Hugmyndin um að "læra" í sjálfri sér er náttúrulega rosalega áhugavert. Fólk er alltaf að læra.
Hvað gerir maður annars þegar maður lærir fyrir próf? Býr til saumakassa. Það hefur verið vandamál síðan ég flutti að heiman, að allt saumadót sem ég hef keypt, hefur horfið í ýmsum flutningum og óskipulagi. Fann alveg frábærlega krúttlega míni saumavél í Tiger. Gat náttúrlega ekki annað en að kaupa hana. 30 krónur danskar er líka alveg ódýrt fyrir svona krúttlegt fyrirbæri. Verð að finna eitthvað til að sauma, til að prófa hvernig þetta virkar. Hugsa að þetta sé tilvalið til að stytta buxur. Það er nefnilega þannig að vinnubuxur fást nánast ekki í kvennastærðum og sérstaklega ekki fyrir svona stutta fótleggi og ég geng um með. Það eru nátturulega líka bara karlar sem vinna í vinnubuxum. Þvæla. Það verður spennandi að sjá hvort maður geti svo keypt aðra nál í þetta, ef þessi brotnar. Vonandi passar einhver venjuleg saumavélanál. Svo þegar ég verð rosa rík, í stóru húsi, fæ ég mér almennilega saumavél. Tiger var líka með fínan kassa, einmitt fullkomin í að geyma saumadót fyrir lítið heimili. Frekar sátt med niðurstöðuna bara!



Þegar ég byrjaði að búa var saumavél í forgangi á undan ísskáp, sjónvarpi, síma, frystikistu og kannski fleiru sem ég man ekki. Fyrst fékk ég lánaða handsnúnu vélina sem amma Jónasína átti og svo ekki löngu seinna keypti ég góða heimilisvél. Nú á ég líka leðursaumavél og svo fótstignu vélina hennar Siggu frænku (afasystur þinnar). Hef reyndar aldrei prófað hana því það þarf að skipta um reim.
ReplyDeleteOg ég átti saumavél sem hin amman átti, nafna mín. Keypti svo saumavél þegar Nanna fæddist og hef notað hana mikið, allavega þegar þið voruð lítil. Það er gaman að sauma.
ReplyDeleteÁttir???!
ReplyDeleteég á hana ennþá, en hún er föst inni í kassanum og mig vantar lykilinn. Átt þú lykil sem gengur að þeim kassa. Eða lokinu ofan á saumavélinni öllu heldur
ReplyDeleteNei, læsingin á minni virkar ekki en gaurar eins og Óli geta ábyggilega dýrkað hana upp?
ReplyDelete