The Killers áttu að spila fimmtudagskvöldið á Tinderbox, þannig að við Kristbjörg tókum lestina til Odense klukkan korter i 6 þann morgun. Ívar býr rétt hjá hátíðarsvæðinu og við fengum að sofa heima hjá honum. Fyrst að Kristbjörg var að fara í próf á mánudeginum, fórum við Ívar í leiðangur og leyfðum henni að læra og sofa smá. Við löbbuðum í Rúmfatalagerinn, þar sem Ívar keypti sér sumarsæng og kodda. Svæðið opnaði klukkan 13 og við vorum komnar á svæðið ekki mikið seinna en það. Fyrstu tónleikarnir voru með Gogol Bordelle, sem voru frekar klassískir festivaltónleikar. Svona mjög hressir gaurar, með fullt af hljóðfærum og tónlist sem maður ekki hefur heyrt áður. Einn af gaurunum var til dæmis með harmonikku sem hann gat sveiflað um, eins og hljóðfærið væri engan veginn þungt. Þegar leið á deginum sáum við Tove Lo, die Antwoord og Kim Larsen.
![]() |
| Kristbjörg fann vinigar fries |
![]() |
| Die Antwoord var frekar klikkað |
Það verður náttúrulega að taka fram, að ég zoomaði ekki á neinum af myndunum, því við vorum það nálægt. Við fórum beint að sofa eftir tónleikana, því dagurinn var á þeim tíma orðin mjög langur.
Föstudagurinn var meira rólegur. Það voru samt alveg þónokkrir tónleikar sem voru vel þess virði að sjá. Við sáum Kaleo (íslensk hljómsveit), Jimmy eat world, Veronica Maggio, Haim og Kings of Leon. Annars vorum við bara að njóta þess að hanga á svæðinu.
Kristbjörg fór heim um laugardagsmorgunin, til að fara að læra fyrir próf. Ívar fékk þess vegna armbandið hennar, sem hún hafði séð til þess að hún gæti tekið af svo hann gæti fengið það. Laugardagurinn var aðallega rapp og hiphop, þannig við Ívar tókum það mjög rólega allan daginn. Eftir Lukas Graham um kvöldið, fórum við heim að sofa.
Sunnudagurinn fór í það að vakna og fara á DalleValle með pabba og kærustunni hans. Ég fékk að keyra um Odense í bílnum hans pabba og lagði meðal annars svona fallega í stæði í miðbænum.
Núna er þetta annað skiptið sem ég hef farið á Tinderbox, bæði skiptin af því ég gat ekki sleppt að fara út af þeim tónleikum sem myndu vera þar. Þessi hátið er alveg ágæt. En ég ætla að halda því fram að maður fái mun meira fyrir peningin á Roskilde, ef maður lítur á upplifum og mangfoldighed. Það sem er sérstakt við Tinderbox er að það er svið sem er sérstaklega sniðað fyrir DJ'a. Ég hef ekki farið á tónleika þar, því ég held ég þekki sjálfa mig nógu rétt til að vita það myndi líklega leiða til einhverskonar kvíðakasti. Venjulegir tónleikar eru alveg nægilega krefjandi fyrir sjálfið mitt.
Steffen fór í síðasta prófið í gær og fékk bara mjög fína einkunn. Núna erum við þar með bæði BA. Ég las að við fáum skírteini sent í pósti, og það eigi að vera komið innan þriggja mánaða. Þannig það verður örugglega fyrst komið eftir þrjá mánuði.
Steffen passaði garðinn voða vel á meðan ég var á Fjóni. Hann er voða stoltur af blómunum sem eruð byrjuð að vaxa í einu horni af beðuðum, sem hann hefur gróðursett. Held bara að hann sé að verða bitinn af þessu líka. Hann smitar fótboltaáhuga á mig og ég garðyrkju á hann. Góð skipti. Við tókum upp fyrstu gulræturnar og svo eru komnar litlar belgur á baunaplöntunum.
Það eru líka loksins komnar hænur í hænsnagarðin. Þær eru svo fínar og virðast njóta lífsins mjög vel þarna.

























Þetta er geggjað :)
ReplyDeleteEn awesome! Allt! :) Og krúttleg frásögn :) Ég fór líka á Gogol Bordello og voru mjög skemmtilegir! Eiga allavega eitt frægt lag, purple eitthvað. Man lagið smá en ekki textann. Ah nú man ég! Start wearing purple! Og það var einmitt strákur í fjólubláum bol við hliðina á okkur.
ReplyDelete