Hún er nánast sama strærð og gamla tölvan mín (11,6 inches) og er svona Chromebook. Maður getur bara verið á Chrome, eins og nafnið gefur til kynna, sem er einmitt það sem mig vantaði. Það sem mig vantaði var nefnilega tölva sem er góð að skrifa í og auðveld að taka með í lest og í skólann. Fyrst ég skrifa allt í gegnum google docs, þá þarf ég ekki fullt af forritum. Hin tölvan virkar fínt enn, er bara orðin pínu hæg, þannig ef ég þarf að nota tölvu sem getur meira en að fara á netið, get ég enn notað hana. Ég borgaði bara 1700 kr fyrir hana, þannig gat ekki orðið mikið ódýrara.
Það er gott að vinna aftur. Fyrstu þrjá dagana hef ég verið að "þvo mold", eins og það er stundum kallað. Það heitir í rauninni "flotering". Þegar maður er úti að grafa þá getur maður tekið jarðprufu, sem er tekin með heim á safnið. Moldin er látin þorna vel og vandlega og svo sett í vatn. Þá flýtur allt lífrænt upp, sem aðallega er kol (og nýjar rætur). Kolin getur maður síðan sent í C-14 prufur (kolefnaeitthvað... Kristbjörg?), sem getur sett tiltölulega mjög nákvæma dagsetningu á hvenær kolin brann. Svo ef maður finnur brennd fræ, þá er fólk sem vinnur við að greina hvaða tegund af fræi það er.
En á morgun fæ ég að fara með út að grafa. Veit ekki enn hvað það er, en það verður gaman. Í næstu viku vinn ég bara á miðvikudeginum, af því ég fer í próf á þriðjudaginn og Tinderbox byrjar á fimmtudeginum. Hlakka til að vera búin í prófinu. Það er pínu erfitt að geta ekki gert mikið annað en að vinna, lesa (oft pínu leiðinlega teksta) og sofa. Gott að geta kíkt í garðinn, til að halda geðinu við.





Og tala vid systur sína :) Fallegar myndir og snidug tölva. Góda skemmtun á morgun :)
ReplyDeleteVá hvað þetta er flott :) En ég myndi taka eitthvað af diskaplöntunum í burtu, þær vaxa of þétt held ég til að blómstra vel.
ReplyDeleteGeðrækt :) Amma þín var einu sinni formaður Geðverndarfélags á Akureyri.
ReplyDelete