Ég stóðst prófið sem ég fór í síðasta föstudag. Þetta var svona besået/ikke bestået, og kennarinn hafði lagt aðaláhersluna á að við værum tilbúin að koma inn og halda uppi samræðu um efnið. Svo erum við búin að vera skila fullt af verkefnum yfir önnina í þessu fagi, þannig prófið var heldur ekki mikið erfitt, ef maður var búinn að undirbúa sig rétt undir það.
Núna er það næsta próf sem er aðaláhyggjuefnið. Það er frekar mikið sem þarf að lesa, svo ég er að berjast í gegnum efnið þessa dagana.
Aðferðin sem ég nota núna, er að lesa og strika undir aðalatriði og skrifa svo það undirstrikaða niður sem glósur eftir að hafa lesið allan tekstan. Ég held að það virki ágætlega fyrir mig. Allavegna komið með heilmikið af skipulögðum glósum, sem segja í stuttu máli hvað allir þessir tekstar segja. Ég ætla að lesa eins mikið og ég get í dag, því ég byrja í fullri vinnu á morgun. Ég get síðan lesið í lestinni á leið í og úr vinnu. Svo hef ég næstu helgi og fer svo í prófið þriðjudaginn þar á eftir. Það væri óskandi að geta fengið góða einkunn, en aðalmálið í samt að falla ekki, svo ég geti officially fengið bachelorgráðuna mína.

Og er svo officially útskrift?
ReplyDeleteSvona officially já, en fólk er ekkert að halda útskrift á bachelornum. Það er meira svona moving on. Svo eigum við ekki einu sinni að forsvare lengur þegar við erum búin að skrifa speciale, þannig þá verður ekki einu sinni meira official að það komi einkunn á netið heh
ReplyDeleteég hef frétt að sálfræðideildin í þessum skóla sé farin að halda hátíðlegar útskriftarathafnir. Þannig var það nú aldeilis ekki þegar ég útskrifaðist
ReplyDeleteÉg bara hef aldrei heyrt um bachelorútskriftir í Danmörku.
ReplyDelete