30.1.18

London og hverdagsleikurinn aftur

Ákvað að sitja heima í dag og lesa. Skólinn byrjaði aftur í gær og ég ætlaði í rauninni að vera í vinnunni í dag, en breytti þannig ég vinn á fimmtudaginn í staðinn og get lesið fyrir morgundaginn í dag. Það er svo mikill hávaði á daginn í íbúðinni vegna byggingarvinnu hinu megin við götuna, en hérna í fællesrummet er alveg hljótt. Veit ekki hvað Steffen er að lesa fyrst hann er svona alvaralegur í svipinn.

Við skiluðum prófi 20. jan, sem við vorum 17 daga að skrifa og fáum svar við seinast á morgun kl 23:59. Fyrst við áttum nokkra frídaga, fórum við til London síðasta miðvikudag. Þegar við komum á hótelið í Hammersmith, fórum við beint á Natural History Museum. Þannig söfn eru í mínu uppáhaldi. Fannst British Museum sem við fórum á nokkrum dögum seinna ekki nærri jafn skemmtilegt. Það var líka frábærlega mikið af flottum steinum þarna.


















Og fann einn frá Íslandi. Þetta lítur mikið út eins og steinana sem er að finna um allt land.

Steffen fannst ég á endanum vera of lengi að skoða steinana. Þetta var líka stærsta herbergi með steina sem ég hef séð. Reyndi að útskýra fyrir honum að mér fannst gaman að skoða steina, af því þetta væri svona fínasta fegurð og alveg náttúrunar verk, eða eitthvað í þá áttina. Hefur ekkert að gera með fornleifafræði ef einhver skyldi halda það.


Annan daginn fórum við og sóttum miðana á Les Miserables sem við vorum að fara að sjá um kvöldið og löbbuðum svo um allan daginn í góða veðrinu. Leiksýningin var alveg frábær, mæli fullshjarta með henni.
Þriðja daginn fórum við að Kings Cross svo ég gæti farið í platform 93⁄4 búðina (Harry Potter) og fórum svo á British Museum. Mér finnst að það safn einkennist allt of mikið á að þau eigi fullt af munum (sem oft eigi mun meira heima á annan stað í heiminum) og það var ekki mikið meira en að maður átti horfa á hluti án mikilla upplýsinga. Hef farið á mörg söfn núorðið, og mér finnst engin ástæða fyrir að þetta stóra safn ætti ekki að geta verið mun betur. Það var líka ókeypis að fara á Natural History Museum og það safn var mun skemmtilegra að skoða. Ef söfn eru ekki að standa sig að vera áhugaverð fyrir stærri hluta af mannsfjöldanum, þá eru þau ekki að standa sig. Söfn eru ekki bara til fyrir fólk sem finnst gaman að horfa á hluti, en það er of oft það sem þau sjá sig sjálf sem verandi.

Fjórða daginn fórum við í stóra Kew garden og svo á fótboltaleik með Bretford, þar sem þrír danir víst spila. Stemmtileg upplifun að sjá svona fótboltaleik í Englandi. 

4 comments:

  1. Mér finnst svo skemmtilegt að þið hafið farið í Kew garden. Það var alveg á mínum lista s.l. sumar, en ég gaf mér ekki tíma til þess.

    ReplyDelete
  2. Það eru líka svona steinar í Mývatnssveitinni sem eru á mynd 2, 3, og 4.
    Það var Englendingur í vinnunni sem sagði að það væri frítt á öll söfn í Englandi.

    ReplyDelete
    Replies
    1. Ekki öll, held ad tad séu bara söfn í ríkiseign sem er ókeypis á (td British Museum og Natural History Museum) og ekki tau sem eru í prívateign. Vid sáum allavegna tónokkur söfn sem átti ad borga til ad skoda. Eins og var med Nationalmuseet, sem líka er eign ríkisins (tangad til um daginn tegar tau innleiddu adgangsgreidslur aftur).

      Delete
  3. Óskaplega eru til fallegir steinar

    ReplyDelete