17.11.17

Kominn nóvember

Við erum að passa hundinn hennar Lauru, hann Pontus.

Svo keypti ég mér myndavél. Svona nokkurn vegin almennilegan. Googlaði og þetta ætti að vera besta nýbyrjanda myndavélin af svona spejlrefleks vélum. Nikon D3400.

Það er fullt að gera í skólanum. Annað hvort er mun meira að gera í master (kandidat) náminu, eða þá er maður bara orðinn duglegri. Það er erfitt að vita. Steffen er líka oft að skrifa greinar fyrir bulibold.dk, sem er síða sem fjallar um þýskan fótbolta.

Við vorum ekkert að flytja svosem, erum að passa Pontus heima hjá Lauru og phd kærastan hennar, á meðan þau eru í London á ráðstefnu. Gáfaða fólkið. 
Erum orðin alveg pró hundapassarar, pössuðum hundinn hennar Mette í síðustu viku. Hún Mette er ólétt. Það eru tvær stelpur óléttar í "bekknum". Voða fullorðinslegar þær eru. Hin er stelpan sem vann með mér í Viborg (þangað til hún varð ólétt og fékk að vita að hún mætti ekki lyfta þungu hlassi). Það er ágætt að hún vinni ekki þarna lengur, því svo ágæt sem hún er, fannst mér að ég væri oftar en ekki að "taka til" eftir hana, þegar hún hafði gert einhverja vitleysu. Og líka það áður en hún varð ólétt.

Við erum að reyna að vera duglegri í að skrifa matarplön fyrir vikuna. Það er líka alveg rosalegur munur, að þurfa ekki að finna upp á kvöldmat á hverjum degi fyrir einn voðalega (að mínu mati) matvandan og eina grænmetisætu. Við bjuggum þess vegna til lista yfir mat sem við bæði borðum og kunnum að búa til, sem við getum valið út af og raðað inn á vikudagana. Svo er næsta þraut að sjá til þess að það sem þarf að nota í endan á vikunni getur endst frá við kaupum inn fyrir vikuna á mánudeginum. Mæli klárlega með einhverju svona fyrirkomulagi.

2 comments: