Ég sit núna úti á miðju Kattegat, á leiðinni til Gøteborg. Ég tók lestina snemma í morgun til Frederikshavn og labbaði þar smá um, þar sem það voru tveir tímar þangað til ég átti að vera mætt upp -í ferjuna. Ég er samferða stelpu sem var að klára fornleifafræðinámið, en þekkti hana samt ekki áður. Við komum í land í eftirmiðdag og tökum þaðan rútu að Tanum, þar sem ráðstefnan verður. Myndi maður kalla þetta ráðstefnu? Það hljómar svo ógurlega pró.
Ég kom með út að grafa í vikunni. Þar rakst ég á fleri maurabú. Áhugaverð dýr.

Mjög pró :)
ReplyDeleteEru þeta ljósir maurar?
ReplyDeleteÞau eru að hlaupa um með eggin sín, en maurarnir sjálfir eru bara venjulega svartir ;)
DeleteEr þetta skemmtileg stelpa?
ReplyDeleteMjög þægilegur félagsskapur :)
DeleteFrábært :)
DeleteEn af hverju í veröldinni eru þeir að þvælast um með eggin? Er það út af fjandans ónæðinu frá fornleifafræðingunum?
ReplyDelete