30.7.17

Ferð heim

Ég ætla að taka aftur við þar sem ég sleppti, með mynd af svefnsalnum þar sem við sváfum 5 stelpur. Við vorum tvær frá Danmörku, tvær frá Ítalíu og ein frá Tékklandi.
Þar sem við vorum búin að klára vinnuna á steinunum á miðvikudeginum, og það var rigning á veðurspánni, var ekki mikið á dagskránni fyrir fimmtudaginn. Við áttum bara að hittast eftir hádegi og keyra að öðrum frægum steini, sem lá smá vegalengd í burtu. 


Á leiðinni tilbaka ákváðum nokkur af okkur að keyra út að sjónum. Þegar við vorum komin þangað ákváðum við svo að borða á veitingarstað þar. Og ég sá hund að leika stýrmann á báti.

Svo björguðum við Michelle bretunum sem við keyrðum með frá því að mögulega fá sekt fyrir að leggja bílnum. Það stóð nefnilega að það átti að nota bílastæðaklukku, en þar sem það ekki var þannig í bílnum, vorum við smá í vafa um hvað átti að gera. En mér tókst svo að lesa á þýsku að maður gæti sett miða í gluggan í staðinn. Greinilega fær maður sekt ef maður er ekki með bílastæðaklukku eða kann þýsku.
Á föstudeginum gerðum við síðastu pappírsvinnuna fyrir skjalfestinguna á steinunum og um kvöldið var farewell dinner. En ég tók greinilega ekki neinar myndir, nema þegar kom býfluga í heimsókn.

Ég fékk að keyra með eldri dönskum hjónum, og þau eru voða yndæl. Þau vildu keyra mig alveg heim og neituðu að leyfa mér að borga í bensín.





2 comments:

  1. Lítur út eins og fish and chips

    ReplyDelete
  2. Okay en yndislegt! Að fá far með gömlu fólki.
    En af hverju á þýsku í Svíþjóð?

    ReplyDelete