24.5.17

Ekkert mikið, en margar myndir

Við Steffen fundum skemmtilegt spil. Sérstaklega svona í prófatíðinni og maður þarf stundum að geta gert eitthvað annað en að lesa, sem ekki tekur of mikinn tíma. Það að auki erum við bæði voða léleg í þessu. Hann vann síðast, en ég er að vinna núna.
Ég fór og vökvaði í dag, eins og venjulega. Það er ekki mikil rigning þessa dagana, en mikil sól. Það var þónokkuð af fólki sem var líka að vökva, held að það séu fleiri sem eru að byrja að hugsa um garðinn sinn fyrir sumarið.

Við Josephine fórum og sóttum grænmeti úr Aarhus økologiske fødevarefællesskab. Það er klárlega plús að búa í stórum bæ, að hafa aðgang að svoleiðis. Fyrir 60 kr fékk maður í þessari viku: Rabbarbari, steinselju, spínat, vorlauk og salathaus. Aðalmálið er samt að maður styður sjálfstæða lífræna ræktum í nágrenninu hjá Árósum. Og allt er fáranlega gott á bragðið.

Mig langar að gera rabbarasultu, því mig langar ekki í rabbaraköku aftur. Bakaði svoleiðis í síðustu viku nefnilega. Það virðist ekki vera alltof erfitt eftir að hafa skoðað smá uppskriftir á netinu.
Ég er byrjuð að læra undir þarnæsta próf. Næsta próf er nefnilega meira samtal um verkefni sem við höfum skilað, þannig það mun ekki þurfa jafn mikla undirbúning og prófið sem er síðast í júni. Það er 45 mín munnlegt próf, með 45 mín undirbúning eftir maður hefur fengið spurningu. Og það er frekar mikið að lesa. Ég er að reyna að vera skynsöm við að lesa og skrifa atriði úr tekstunum niður. Ég meina, það er ekki eins og ég hafi mikið annað að gera þessa dagana.

Maður getur giskað á hvor maturinn er minn og hvor er Steffens.
Að lokum eitt risastórt spínatlauf og tilraun að selfie eftir Thai bo tíma í fitness.



5 comments:

  1. Rabbarbaragrautur er líka fínn

    ReplyDelete
    Replies
    1. Er búin ad búa til frábærlega góda sultu. Rabbararinn passadi einmitt í eitt glas.

      Delete
  2. Hefur systir mín aðgang að þessu bloggi?

    ReplyDelete
  3. Væri gaman að vita hvað er í rabarbarasultu í danskri uppskriftabók?

    ReplyDelete
  4. Búin að sjá það

    ReplyDelete