Ég "notaði" þessa uppskrift, en fyrst vigtin mín bilaði (og vigtin sem Nanna gaf mér er niðri í kjallara einhversstaðar) þá gat ég ekki mælt rabbabaran og gerði þess vegna allt på gefühlen. Mjög auðvelt að gera svona greinilega. Ég notaði ekki þetta efni sem lætur þetta endast lengur, af því Mamma sagði einhvern tíman að sykur virkaði eins og rotvarnarefni (held ég). Ég er hvort sem er líka búin að fá Steffen til að nota alltaf hreina skeið, svo þetta ætti ekki að mygla. Hún er samt bara svo góð á bragðið, að hún mun örugglega ekki endast lengi.
Það er svo heitt þessa dagana. Dæmigert prófatíða veður. Lá úti í gårdhaven og las í nokkra klukkutíma, þannig maður reynir allavegna að nýta sér góða veðrið. Ég fór í jógatíma á fimmtudaginn, sem var gaman af því að var ekstralangur tími, með auka fókus á jafnvægisæfingum. Mér finnst mér fari mikið fram með svona jafnvægi, enda var ég frekar léleg í því áðurfyrr. Var að læra þessa skrítnu æfingu, sem reyndar reynir ekki svo mikið á jafnvægið. Er bara skrítinn. Mjög einbeitt á svipin náttúrulega.
Við hittum frosk til fredagsbar í gær. Það var gaman.





kvakk kvakk sagði lítill grænn froskur einn dag, kvakk kvakk sagði lítill grænn froskur
ReplyDelete