Ég fór niður að garðinum mínum áðan. Vökvaði og plantaði nokkrum grænum baunum (ærter), af því það voru ekki margar af þeim sem ég upprunalega plantaði sem ákváðu að spíra. Læri bara eittvað af því. Það kom maður og spurði mig hvað kostaði að hafa svona garð og svona. Það er voðalega mikill áhugi fyrir þessum Urban garden. Það er oft meira af fólki sem tekur myndir og skoðar garðana, en það er fólk sem er að passa garðana sína. Maður verður nánast bara tourist attraction þarna. Eitthvað fólk hefur víst verið að stela jarðaberjaplöntum og berjarunnum úr beðunum. Það þeim skuli finnast það þess virði, is beyond me.
Það eru ekki allar baunaplönturnar sem eru að lifa af, en ég treysti líka á að þær myndu ekki allar meika það. Annars væru allt of mikið af baunum þarna. Hef allavegna lært að ef baunirnar mygla þegar þær spíra, þá er meiri möguleiki á því að plöntunum ekki líða vel seinna. Eins og fólk, þegar þeim ekki líða vel sem börnum, þá gengur þeim oft verr sem fullorðið fólk. Já, baunaplönturnar mínar eru eins og fólk. Annars er eiginlega allt sem ég hef plantað að vaxa vel. Nema steinseljan sem ég setti í pott, það er cirka helmingurinn visnaður.






Já, við sáum engan passa garð þegar við vorum að skoða þetta í fyrra. Þannig að ég skil vel að fólk tali við þig þegar þú ert að passa garð.
ReplyDeleteHahahaaah eins og tourist attraction. Fyndið!! :D
ReplyDeleteVildi að ég gæti komið á þig jarðarberjaplöntum, má til að grisja helling, hef ekki komið því í verk árum saman.
ReplyDelete